|
Óvelkomnir gestir í Reykjavík |
|
|
|
|
Skrifað af Elías Davíðsson (DV, 30.8.1996)
|
|
Fimmtudagur, 15. Nóvember 2007 22:43 |
|
Óvelkomnir gestir í Reykjavík
eftir Elías Davíðsson
DV, 30 ágúst 1996
Á undanförnum mánuðum hefur svonefnd varnarmálaskrifstofa
utanríkisráðuneytisins skipulagt með leynd heimsókn 17 herskipa til
Reykjavíkur.
Ekki venjulegir ferðamenn
Samkvæmt frétt í Mbl. þann 11. ágúst eiga herskipin að koma í tveim
áföngum, sjö skip þann 21. ágúst og tíu skip sex dögum síðar, með alls
um 4800 hermenn um borð.
Fréttinni fylgir að verslunareigendur á Laugeveginum hafi verið beðnir
um að lengja afgreiðslutíma verslana sinna fram til miðnættis meðan
hermennirnir eru í bænum. Tilkynnt var að SVR yrði með sérstakar
strætisvagnaferðir milli Sundahafnar og miðbæjar fyrir hermennina.
Það er greinilegt markmið skipuleggjenda að sviðsetja þennan atburð
eins og um vær að ræða sakleysislega heimsókn skemmtiferðaskipa. Það
var líka klókt hjá þeim að fá kaupmenn til liðs við sig. Margur verður
af aurum api.
Hermennirnir eru þó ekki venjulegir ferðamenn. Þeir heimsækja Reykjavík
samkvæmt skipun yfirboðara sinna og í samræmi við tiltekin markmið sem
ekki eru gefin upp. Þeir hafa ekki sjálfir valið að koma til Íslands og
við höfum ekki boðið þeim hingað. Samkvæmt sömu frétt eiga hermennirnir
að skilja einkennisbúninga sína eftir um borð og ganga um bæinn í
dulargervi, þ.e. í borgaralegum fötum, til að villa á sér heimildir.
Því er haldið fram að hér sé um vináttuheimsókn að ræða. En góðir vinir
hafa ekki fyrir venju að koma í heimsókn með drápstól í farteskinu,
þótt þeir kynnu að geyma þau í forstofunni. Að kalla komu herskipa
vináttuheimsókn er móðgun við alla sem vita hvað raunveruleg vinátta er.
Er þetta framtíðin?
Í raun eru þjóðir aldrei spurðar þegar um samskipti stjórnvalda þeirra
við NATO er að ræða. Þau mál eru iðulega afgreidd af huldumönnum sem
enginn hefur kosið og fáir vita hverjir eru. Allt sem varðar her og
vígbúnað er í eðli sínu andstætt lýðræði og opnu samfélagi. Þau mál
þola hvorki birtu né heiðarleika.
Hermennirnir sem hingað koma eru ekki gestir Reykvíkinga. Mér vitanlega
hafa borgarbúar aldrei veitt borgaryfirvöldum umboð til að láta
borgarstofnanir þjónusta erlend herskip og breiða út rauð dregilinn
fyrir hermenn. Eru Íslendingar að veita einstaklingum gestrisni sem
tóku þátt í stríðsglæpum í Panama (1990) eða í Írak (1991)? Borgarbúar
eiga rétt á að fá skýringar borgaryfirvalda á þessari þjónkun. Er þetta
gert með vilja og samþykkt borgarstjórnar?
Köllum hlutina réttu nafni. NATO er hernaðarbandalag. Það er
ólýðræðislegur og lokaður klúbbur sem þjónar fyrst og fremst
hergagnaframleiðendum. Til þess að vopnin seljist veerða því þjóðir að
tortryggja hver aðra, vopnbúast og að lokum berjast. Þegar einn
óvinur hverfur er annar særður fram. Bandalagið ógnar utanstandandi
ríkjum með kjarnorkuvopnum sínum. Herir þess hafa verið notaðir til að
drepa óbreytta borgara. Aðeins þeir sem vilja viðhalda ríkjandi
ranglæti í heiminum þurfa á slíkum herjum að halda, ekki við
Íslendingar. Heimsfriður byggist ekki á hernaði og ógnun heldur á
réttlæti, en það er hvorki í verkahring NATO að stuðla að jöfnuði í
heiminum né að tryggja þjóðum brauð og vinnu.
Undir forystu Halldórs Ásgrímssonar og Davíðs Oddssonar er nú verið að
spinna í kyrrþey þéttriðinn vef tengsla milli íslenskra stofnana og
skrifsstofa hernaðarbandalagsins í Brussel og draga lævíst úr
eðlislægri andstöðu ungs fólks gegn hernaðarhyggju. Er þetta framtíðin
sem menn sækjast eftir?
Endir
|