|
 |
 |
 |
 |
|
Heimsóknir |
Innihald skoða hittni : 108124
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
 |
 |
 |
fimmtudagur, 29. júlí 2010 |
|
Morgunblaðið heiðrar Shamir |
|
|
|
|
Skrifað af Elías Davíðsson (Tíminn, 1 ágúst 1990)
|
|
Miðvikudagur, 02. Apríl 2008 23:21 |
Morgunblaðið heiðrar Shamir
eftir Elías Davíðsson
Tíminn, 1. ágúst 1990
Sunnudaginn 15. júlí sl. birti Mbl. tveggja síðna einkaviðtal við
forsætisráðherra Ísraels, Yitzhak Shamir. Það er athyglisvert að
ritstjórar útbreiddasta dagblaðs á Íslandi skuli leggja fé og vinnu í
að heiðra ótíndan glæpamann og stuðla að vinsamlegri ímynd hans meðal
Íslendinga.
Það eru þrenns konar þagnir, sem einkenna viðtalið: Í fyrsta lagi er
ekki greint frá nafni blaðamannsins, sem átti viðtalið; í öðru lagi er
þagað vandlega yfir ferli mannsins og um aðild hans að margvíslegum
hryðjuverkum og stríðsglæpum; í þriðja lagi er þagað um andstöðu
mannsins við alþjóðalög, alþjóðasamninga, ályktanir Sameinuðu þjóðanna
og grundvallarreglur siðferðis, sem eru sameign allra trúarbragða.
Þótt ljóst sé af eðli spurninganna og af því sem ekki var spurt um, að
markmið Mbl. hafi verið að auka veg og virðingu Shamirs á Íslandi,
liggur ekki ljóst fyrir, hver hafi átt frumkvæði að viðtalinu. Hvers
vegna er þagað yfir nafni blaðamannsins og hvaða hag sjá ritstjórar
Mbl. sér í því að reka erindi glæpamanns á Íslandi?
Í þessari grein mun ég reyna að fylla eilítið í eyðurnar, sem Mbl.
skildi eftir, og lýsa í stuttu máli lífsferli Shamirs, aðild hans að
glæpum og afstöðu hans til friðar og réttlætis.
Shamir fæddist í Póllandi árið 1915. Hann kom tvítugur til Palestínu
þar sem hann hóf laganám en hætti því fljótt til þess að helga sig
þátttöku í hryðjuverkasamtökunum IRGÚN. Hann byrjaði þegar árið
1936 að taka þátt í undirbúningi hernaðarsamtaka í Tel Aviv. Fátt er
vitað um þetta tímabil, nema að hann og vinur hans, 15 ára gamall, hafi
særst þegar þeir ætluðu árið 1938 að sprengja upp innheimtukofa annarra
síonistasamtaka. Hann hóf því glæpaferil sinn með því að beita aðra
gyðinga ofbeldi táknræn byrjun fyrir mann sem er að leiða þjóð sína á
braut kynþáttaofstækis og sjálfstortímingar.
Aðild Shamir að hryðjuverkasamtöknum LEHI
Um 1940 sagði Abraham nokkur Stern sig úr IRGÚN-samtökunum og stofnaði
samtökin LEHI (Lohamei Herút Jisrael), sem gengu einnig undir nafninu
Sterngengið. Stern þótti IRGÚN ekki nógu róttæk samtök. Stefn hafði
dálæti á Mussolini og vildi vinna að stofnun þjóðernissinnaðs
gyðingaríkis á fasískum grunni. Landamæri þessa ríkis áttu að ná frá
Nílarfljóti í Egyptalandi til Efraárinnar í Írak. Íbúa þessa stóra
svæðis, sem ekki voru gyðingar (þ.e. 99% íbúanna) átti að uppræta til
að rýma fyrir aðfluttum gyðingum. Þegar þeir væru búnir að koma upp
ríki sínu, áttu gyðingar svo að endurreisa musteri sitt. Í samræmi við
þessar kenningar, buðu samtökin Nasistaþýskalandi upp á samvinnu í
stríðinu gegn Bretum og unnu að stofnun bandalags þjóðernissinnaðra
ríkja undir forystu nasista. Samtökin sendu sérstakan erindreka til
fulltrúa Nasistaþýskalands í Tyrklandi með skriflegt erindi þar að
lútandi. Þar var m.a. vitnað til velþóknunar nasista í garð síonista og
til aðskilnaðarstefnu gyðinga. Erindið fannst eftir stríðslok og var
birt á ensku í bókinni The Iron Wall eftir Leni Brenner (London, 1984).
Það var ekki fyrr en árið 1983 að blaðamönnum tókst að fá Shamir til að
svara spurningum um þetta tímabil. Í viðtali við ísraelska dagblaðið
Yediot Aharonot í október 1983, sagði hann:
Jú, það var ætlunin að leita til Ítaliu [undir forystu Mussolinis] um
aðstoð og taka upp samband við Þýskaland [undir forystu Hitlers] með
það fyrir augum að liðka fyrir miklum flutningum á gyðingum. Ég var á
móti þessi en gekk í LEHI eftir að hugmyndirnar voru lagðar æá hilluna.
Þótt menn gefi sér það, að Shamir segi rétt frá, þá hlýtur þó sú
staðreynd að vekja athygli, að núverandi forsætisráðherra Ísraels hafi
talið það í lagi að ganga til liðs við samtök sem vildu vinna með
Nasistaþýskalandi, löngu eftir að þau vissu af ofsóknum nasista gegn
gyðingum. En Shamir laug. Það liggur nefnilega fyrir, að Shamir hafi
þegar verið virkur félagi í LEHI þegar samtökin sendu erindreka til
fulltrúa Nasistaþýskalands með beiðni um samvinnu. Ennfremur var
erindið ekki fyrst og fremst miðað við að frelsa gyðinga úr klóm
nasista, heldur að efla samvinnu við nasista á hugmyndafræðilegum,
pólítiskum og hernaðarlegum grunni. Höfuðóvinur LEHI á þessum tíma voru
Bretar, ekki nasistar. Helför nasista gegn gyðingum var ekki efst á
dagskrá samtakanna. Þau töldu þjóðernisstefnu síonista standa ofar
öryggi gyðinga í Evrópu. Þau litu á andgyðingleg öfl í Evrópu sem
bandamenn, ekki sem óvini, því gyðingaofsóknir juku á straum
innflytjenda til Palestínu og efldu baráttuna fyrir stofnun
gyðingaríkis á landi Palestínumanna. Skrif þeirra frá þessum árum og
fram til þessa dags, sanna þessi orð.
Frá því 1941 stóðu samtökin LEHI fyrir árásum á breska embættismenn í
Palestínu. Shamir var þá handtekinn en honum tókst að flýja 1.
september 1942. Samfangi hans Giladi ákvað að samtökin ættu
einnig að ráða af dögum leiðtoga síonista, s.s. Ben Gurion. Shamir
taldi slíkt hættulegt og ákvað því upp á eigin spýtur að láta ráða vin
sinn, Giladi, af dögum sem og var gert.
Árið 1944 stóðu samtökin fyrir morðinu í Kairó á fulltrúa Churchills í
Austurlöndum nær, Moyne lávarði. Shamir skipulagði morðið. Samtökin
reyndu að veikja breska herinn, ekki aðeins í Palestínu, heldur
allsstaðar. Með morðum á breskum embættismönnum drógu þeir úr samúð
Evrópumanna með gyðingum, einmitt á þeim tímum, þegar morðvél nasista
gekk með fullum afköstum.
Árið 1946 var Shamir aftur handtekinn í Tel Aviv. Samtök hans og IRGÚN
höfðu þá sprengt upp King David hótelið í Jerúsalem. Tugir óbreyttra
borgara dóu í sprengingunni. Breska lögreglan flutti hann í
nauðungarbúðir í Erítreu.
Hann flúði þaðan og komst að komum tilbaka til Palestínu eftir að búið
var að stofna Ísraelsríki. Samtök hans, LEHI, höfðu þá í millitíðinni
staðið fyrir hinu illræmda blóðbaði á arabískum íbúum í Deir-Jassin.
Menahem Begin sagði síðar, að án blóðbaðsins í Deir-Jassin hefði
Ísraelsríki ekki komist á laggirnar. Ástæðan er sú, að hundruð þúsunda
Palestínuaraba flúðu skelfingu lostnir frá heimilum sínum af ótta við
að verða fyrir barðinu á slíkum árásum. Öll hryðjuverkasamtök gyðinga,
LEHI, IRGÚN og HAGANA, sáu um að magna skelfinguna og beittu hótunum og
valdi til að flæma sem flesta Palestínuaraba burt. Aðeins þessi
fjöldaflótti gerði síonistum kleift að lýsa yfir stofnun sértrúarríkis
gyðinga á rústum palestínskra þorpa.
Meint aðild Shamirs að morðinu á sáttasemjara Sameinuðu þjóðanna
Þann 17. september 1948 var greifinn Folke Bernadotte ráðinn af dögum í
Jerúsalem. Hann hafði verið sérlegur sáttasemjari Sameinuðu þjóðanna.
Bernadotte hafði þá lagt áherslu á, að Ísrael bæri að virða rétt
palestínskra flóttamanna til að snúa aftur til heimila sinna, í samræmi
við ályktanir Sameinuðu þjóðanna. Heimurinn allur fordæmdi verknaðinn,
einnig Ben-Gurion. Shamir og vinir hans urðu að fela sig. Sá sem framdi
morðið, Jehoshua Cohen að nafni, viðurkenndi það mörgum árum síðar en
var ekki dreginn fyrir rétt. Hann varð síðar meir einn nánasti vinur
Ben-Gurions. Ísraelskir fræðimenn sem rannsakað hafa málið, t.d. dr.
Amitsur Ilan og Benny Morris, telja víst að Shamir hafi skipulagt
morðið á Bernadotte. Þetta er einnig niðurstaða sænskra fræðimanna (en
Bernadotte var Svíi).
Shamir veitir leyniþjónustunni forstöðu
Árið 1955 heimilaði ríkisstjórn Verkamannaflokksins í Ísrael að
fyrrverandi meðlimir LEHI og IRGUN gætu tekið til starfa í ísraelsku
leyniþjónustunni, MOSSAD: Shamir gekk í lið við þjónustuna og veitti
henni forstöðu fram til 1965. Á þessu tímabili stóð
leyniþjónustan að ýmsum aðgerðum á erlendri grund, t.d. gegn þýskum
tæknimönnum sem störfuðu í Egyptalandi og er talið að hún hafi sent
þeim sprengjur í pósti.
Hryðjuverk ísraelsku leyniþjónustunnar gegn palestínskum menntamönnum
og leiðtogum á erlendri grund voru framin seinna, þ.e. eftir að Shamir
var hættur starfi sínu í Mossad.
Stjórnmálaferill Shamirs og afstaða hans til Palestínumálsins
Shamir gekk í Herútflokkinn árið 1970 og var enn á 27. sæti á listanum
í kosningunum árið 1973. En eftir að hann var kosinn til þings
(Knesset) jókst frami hans og var hann kosinn formaður flokksins árið
1975. Árið 1980 tók hann við af Moshe Dayan sem utanríkisráðherra.
Þegar Ísraelsríki réðst inn í Líbanon árið 1982, var Shamir ráðherra í
ríkisstjórninni. Hann mælti með innrásinni og var því samábyrgur öllu
því sem þar fór fram, þ.m.t. fjöldamorðum í flóttamannabúðunum Sabra og
Shatila og margra vikna loftárásum á borgir, þorp og flóttamannabúðir.
Fjöldi þeirra sem létu lífið í innrásinni er talinn um 30.000 manns,
þeirra á meðal margir landar Shamirs.
Þegar Shamir átti að taka við af Menahem Begin sem forsætisráðherra,
sendu samtök andfasiskra andófsmanna og fórnarlamba nasismans í Ísrael
skeyti til forsetans, Haim Herzog, þess efnis að manni sem ætlaði að
koma á samvinnu við nasistastjórnina ætti ekki að leyfast að taka við
embætti forsætisráðherra. Viðbrögð voru engin.
Verkamannaflokkurinn þagði þunnu hljóði og samþykkti Shamir sem
forsætisráðherra þjóðstjórnar.
Vestrænir fjölmiðlar eru iðnir við að útbreiða vanþekkingu um afstöðu
ísraelskra stjórnvalda til deilunnar við Palestínumenn. Það er fátítt
að afstaða þeirra sé borin saman við þjóðaréttinn eða við ályktanir
Sameinuðu þjóðanna, sem flestar þjóðir styðja. Þó er þetta hinn eini
lagalegi grundvöllur sem opnar möguleika á friðsamlegri lausn deilunnar.
Sé virðing stjórnmálamanna fyrir þjóðarétti, alþjóðasamningum,
drengskap og mannréttindum notuð sem mælikvarði til að úrskurða hvort
þeir eigi heima í siðaðra manna tölu, þá á Shamir frekar heima með Idi
Amin, Ceauscescu og Pinochet.
Shamir er mótfallinn friðsamlegri lausn deilunnar við Palestínumenn. Í
hans augum byggist friður á afneitun allra þjóðaréttinda Palestínumanna
og á áframhaldandi aðskilnaðarstefnu í Ísrael. Afstaða hans stangast á
við afstöðu alls mannkyns. Ennþá fær hann vissan stuðning frá
Bandaríkjunum, sem gerir honum kleift að sýna kokhreysti. Því miður
gera alltof fáir menn sér far um að bera saman síðustu
stjórnmálaályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna (nr. 44/42 frá 6.
desember 1989) sem naut fylgis næstum allra ríkja heims (með 3 ríkjum á
móti) við yfirlýsta stjórnarstefnu Shamirs. Morgunblaðið hefur ekki
gaumgæft stefnu Shamirs á grundvelli þjóðaréttar og alþjóðlegra
ályktana. Blaðamaður Mbl. spyr ekki einu sinni forsætisráðherra Ísraels
hvað honum finnist um einróma ályktun Alþingis Íslendinga frá því í
fyrra, er varðar sérstaklega deilu Ísraels og Palestínumanna, en sú
ályktun stangast í grundvallaratriðum á við stefnu Ísraelsríkis. Það
hefði því verið afar fróðlegt að fá Shamir til að hirta opinberlega
íslenska alþingismenn fyrir vankunnáttu og gyðingahatur.
Shamir og stríðsglæpir
Hugtakið stríðsglæpir er lagalegt hugtak. Það er notað um athæfi, sem
er stranglega bannað í þjóðarétti, einkum í Genfarsamningunum
svonefndu. Genfarsamningarnir voru undirritaðir árið 1949 af flestum
þjóðum til að tryggja öryggi óbreyttra borgara, fanga og sjúkra á
ófriðartímum. Þjáningar óbreyttra borgara í heimstyrjöldinni síðari
voru hvati að þessum samningum. Genfarsamningarnir koma ekki í stað
Mannréttindasáttmála S.Þ. Þeim er aðeins ætlað að tryggja lámarks
mannréttindi undir óvenjulegum kringumstæðum. Brot á Genfarsamningunum
eru ekki réttlætanleg undir neinum kringumstæðum. Þau eru skilgreind
sem glæpir gegn mannkyninu öllu. Alvarleg brot á Genfarsamningunum eru
kölluð stríðsglæpir". Þess vegna voru sett ákvæði í Genfarsamningunum
um skyldu allra aðildarríkja samninganna til að tryggja að þeir verði
virtir bæði heima fyrir og alls staðar í heiminum. Það er einnig skylda
aðildarríkja að löggilda samninga í heimalöggjöf sinni og að stefna
mönnum fyrir rétt, sem hafa gerst sekir um alvarleg brot á
samningunum, án tilits til þjóðernis og þess hvar brotin voru framin.
Lögsaga samninganna er því yfirþjóðleg.
Það leikur enginn vafi á því, að Yitzhak Shamir, sem forsætisráðherra,
beri ábyrgð á alvarlegum brotum gegn IV. Genfarsamningunum, sem
ríkisstjórn hans hefur latið fremja eða látið viðgangast. Þessi
alverlegu brot eru m.a. þau að drepa óbreytta og varnarlausa borgara,
reka íbúa hertekinna svæða í útlegð, refsa heilum fjölskyldum eða
heilum byggðalögum fyrir meint athæfi eins manns og pynta fanga. Öll
helstu samtök um mannréttindi í heiminum, Amnesty International og
Alþjóða Rauði krossinn, eru sammála um að ríkisstjórn beri ábyrgð á
gerðum hermanna sinna gegn óbreyttum borgurum á herteknu svæðunum og að
ofangreint athæfi sé skýlaust brot á IV. Genfarsamningunum. Þetta er
einnig skilningur yfirgnæfandi meirihluta aðildarríkja Sameinuðu
þjóðanna.
Það er skylda íslenskra stjórnvalda að löggilda Genfarsamningana
[ath. árið 2008 er ekki enn búið að löggilda þá]. Það er
ennfremur skylda þeirra, sem og annarra aðildarríkja Genfarsamninganna,
að stefna mönnum á borð við Yitzhak Shamir fyrir rétt, hafi Ísraelsríki
ekki gert það. Það er því aumt að vita til þess að íslensk stjórnvöld
hafi hunsað skuldbindingar sínar gagnvart þessum alþjóðasamningum, sem
eiga að tryggja mannréttindi, þrátt fyrir ítrekuð tilmæli
Alþjóðanefndar Rauða krossins. Hvort um leti eða pólítiskt hugleysi er
að ræða, er látið milli hluta liggja.
En það er enn sorglegra að verða vitni að því að öflugasta dagblað á
Íslandi skuli þóknast slíkum manni, sem með ofstæki sínu leiðir þjóð
sína, nágrannaþjóðir og allan heiminn fram að barmi heimstyrjaldar.
Ritstjórar Morgunblaðsins ættu að blygðast sín fyrir þekkingarleysi
sitt og undirlægjuhátt og reyna að bæta ráð sitt.
Hr. ritstjóri, Ingvar Gíslason
Um leið og ég þakka Tímanum fyrir birtingu Opins bréfs til
utanríkisráðherra fyrir nokkrum mánuðum, sendi ég þér meðfylgjandi
grein sem ég skrifaði til að bregðast við einkaviðtali Mbl. við Y.
Shamir, forsætisráðherra Ísraels.
Það hefði verið eðlilegt að ég fengi að birta þessa grein þar í blaði.
En eins og þér er kunnugt um, hafa ritstjórar Mbl. sett ritbann á skrif
mín og hefur ritbannið verið í gildi í um 9 ára skeið. Mér þætti vænt
um, ef Tíminn gæti minnst á þetta ritbann, a.m.k. sem athugasemd við
grein þessa, t.d. á þessa leið:
Með eftirfarandi grein bregst höfundur við efni sem birtist í
Morgunblaðinu. Eðlilegt hefði verið að birta hana í því blaði, en úr
því gat ekki orðið. Árið 1981 setti ritstjórn Mbl. algert og
fordæmislaust bann á skrif undirritaðs og hefur það verið staðfest
bréflega í ár. Undirritaður þakkar ristjóra Tímans fyrir að birta
þess greina og styðja þannig tjárningarfrelsið, sem ritstjórar Mbl.
virðast ekki þola.
Með kveðjum og þökkum,
Elías Davíðsson,
Skólastjóri
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|