aldeilis.net - juscogens.org
Fyrir réttlæti, sannleika og frið

Heim
Aðalvalmynd
Heimsóknir
Innihald skoða hittni : 114202
 þriðjudagur, 07. september 2010
Hverjir stóðu að fjöldamorðunum 11. september 2001? Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Elías Davíðsson   
Fimmtudagur, 18. Ágúst 2005 18:14
Hverjir stóðu að fjöldamorðunum 11. september 2001?

Elías Davíðsson


Í fjöldamorðunum þann 11. september 2001 dóu tæplega 3000 manns. Þessi fjöldamorð, þau mestu í nútímasögu Bandaríkjanna, vöktu réttmætan óhug um allan heim og kölluðu fram mikla samúð við syrgjendur og við bandarísku þjóðina.

Flestir hafa, af skiljanlegum ástæðum, treyst opinberri frásögn bandarískra yfirvalda um atburðarásina og um meinta ábyrgð Osama Bin Laden að fjöldamorðunum, enda hafa allir fjölmiðlar breitt út ásakanir bandarískra yfirvalda á hendur honum athugasemdalaust.  Samt sem áður birtust fyrstu dagana fréttir sem gengu þvert á opinberar yfirlýsingar. Aðeins fáir tóku eftir þeim fréttum, á þeim tíma þegar allur heimurinn stóð á öndinni. Eins og flestir, sá ég ekkert athugavert við þá ásökun að Osama bin Laden og Al Qa’ida hafi verið að verki.  Það var ekki fyrr en heilu ári eftir þessa atburði að mér var bent á undarlegar mótsagnir í opinberri frásögn bandarískra yfirvalda um þá. Af forvitnissökum fór ég að kanna málið af eigin rammleik. Eftir því sem á leið á rannsóknina, jukust efasemdir mínar um það sem var almennt talið.

Opinbera frásögnin
Opinbera frásögnin er það sem bandarísk stjórnvöld hafa haldið fram um atburði 11. september og er lýst í lokaskýrslu bandarískrar rannsóknarnefndar frá júní 2004. Auk  þess er einnig átt við opinberar yfirlýsingar bandarískra leiðtoga á ýmsum tímum, þ.m.t. sjálfan örlagadaginn og þar eftir.

    Samkvæmt opinberu frásögninni rændu nítján nafngreindir meðlimir Al-Qa’ida, þar af 15 Saúdar, þann 11. september 2001, fjórum farþegaþotum í Bandaríkjunum.  Þeim tókst að fljúga tveim þeirra á turnana tvo í New York (World Trade Center), þriðju vélinni að byggingu Varnarmálaráðuneytisins í Washington (Pentagon). Þeim mistókst hins vegar að stýra fjórðu vélinni að skotmarki sínu (Hvíta húsinu); sú flugvél skall til jarðar á landsbyggðinni í Pennsýlvaníu eftir meint átök milli flugræningjanna og farþega.  Allir farþegar, áhafnir og flugræningjar létu lífið í þessum sjálfsmorðsárásum, auk meira en 2500 manns á jörðu niðri.  Turnarnir tveir hrundu, eftir um klukkustund, af völdum mikils eldsvoða.  Flugræningjarnir notuðu pökkunarhnífa til að yfirbuga áhöfn og farþega.   Bandarísk yfirvöld bjuggust ekki við slíkum árásum og þess vegna tókst þeim ekki að bregðast nógu fljótt við þeim.

    Þessi frásögn er þegar orðin að trúarkenningu.  Fjöldi bóka, greina og kvikmynda byggja á þessari frásögn, þótt engar sannanir liggi fyrir. Þeir sem efast um trúverðugleika þessarar frásagnar eru taldir rugludallar og eru settir í flokk með sérvitringum sem trúa á fljúgandi furðuhluti.  Það þykir ekki við hæfi að hleypa slíkum efasemdarmönnum inn í virðulegan félagsskap.

    En þeir sem hafa vanist vísindalegum vinnubrögðum hljóta samt að leita svara við mýmörgum spurningum sem bandarísk stjórnvöld hafa neitað að svara.  Meðan þeim spurningum er ekki svarað, er ekki unnt að staðfesta eitt eða neitt um þessa atburði. Með þessu erindi er það ætlun mín að veita dálitla innsýn í þetta óuppljóstraða sakamál.

Engar sannanir lagðar fram, engar ákærur
Fáir vita að bandarísk yfirvöld hafa ekki lagt fram neinar opinberar sannanir um sök Al-Qa’ida eða Osama bin-Laden á fjöldamorðunum 11. september.  En þetta er nú samt raunin og var reyndar staðfest í bréfi frá Utanríkisráðuneytinu í Reykjavík frá febrúar 2005. Bréfið var svar við beiðni minni um að sjá þær sannanir sem íslensk stjórnvöld hafa fengið frá Bandaríkjastjórn um meint tengsl Osama bin Laden og al-Qa’ida við þessi fjöldamorð.
    Bandarísk stjórnvöld hafa ekki aðeins neitað að leggja fram sannanir, heldur hafa jafnvel eyðilagt sönnunargögn um atburði 11. september, krafist þagnar af þeim sem búa yfir vitneskju sem gæti varpað skugga á hinn opinbera sannleik og mútað ættingjum fórnarlamba til að spyrja ekki óþægilegra spurninga. Þrátt fyrir gylliboð yfirvalda – að meðaltali $1,8 milljón á mann – hafa sumir ættingjar fórnarlamba afþakkað þessari ,,dúsu" og kosið að leita sannleikans, með milligöngu dómstóla, ef þarf. Meðan hundruð fanga hírast enn í ýmsum fangelsum á vegum Bandaríkjahers víða um heim á grundvelli ,,baráttunnar gegn hryðjuverkum”, sumir hverjir í hátt á fjórða ár án dóms og laga, hafa bandarísk dómsyfirvöld ekki ákært fanga sína um beina eða óbeina aðild að fjöldamorðunum.  Enginn maður, hvorki í Bandaríkjunum né annars staðar, hefur verið ákærður fyrir aðild að fjöldamorðunum 11. september, ekki einu sinni meintir leiðtogar Al-Qa’ida sem eru í haldi Bandaríkjanna.  Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush sagði fáum mánuðum eftir 11. september að hann hefði ekki lengur áhuga á Osama bin Laden.  Þann 20. júní 2005 sagði Porter Goss, yfirmaður CIA, í viðtali, að þótt Bandaríkin telji sig vita hvar Osama bin Laden feli sig, sé ekki að vænta handtöku hans í bráð.

Komið í veg fyrir rannsókn fjöldamorðanna
Það er ófrávíkjanleg regla í siðmenntuðum samfélögum að morðmál sé rannsakað í þaula.   Það hlýtur því að vekja furðu að bandarísk stjórnvöld hafi komið í veg fyrir rannsókn um fjöldamorðin 11. september. Þann 12. september, daginn eftir atburðina, sagði dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, John Ashcroft, á fundi í Hvíta húsinu, að Alríkislögreglan (FBI) ætti ekki að sóa tíma sínum í rannsókn fjöldamorðanna. Að sögn hans myndi rannsókn málsins draga úr getu lögreglunnar til að koma í veg fyrir frekari árásir.  Þessa skipun endurtók hann fjórum vikum síðar til að undirstrika að bandarísk yfirvöld vildu ekki láta rannsaka þetta mikla sakamál.  Starfsmönnum FBI sem sýndu of mikinn dugnað við rannsókn á starfsemi Al-Qa’ida og Osama bin Laden, var sagt upp starfi eða þeir áminntir.
    Það er ófrávíkjanleg regla flugyfirvalda í Bandaríkjunum að rannsaka hvert einasta flugslys.  Bandarísk yfirvöld brutu hins vegar þessa algildu reglu í fyrsta sinn með því að meina réttmætum flugyfirvöldum aðgang að flaki, brotum og svörtu kössum flugvélanna sem steypt hafi verið á turnana og Pentagon 11. september 2001.  Menn spyrja: Hverju er verið að leyna með þessu?
    Fjölskyldur fórnarlamba biðja með réttu um upplýsingar um allt sem varðar dauðaflug ástvina þeirra:  Hvers vegna tókst ,,flugræningjunum” að yfirbuga alla farþega og áhöfnina í þremur flugvélum án mótspyrnu? Hvers vegna tókst flugstjóranum ekki að stimpla inn neyðarnúmerið? Notuðu ,,flugræningjarnir" sprengjur og skotvopn, ef marka má það sem haft er eftir flugþernur sem hringdu úr vélunum, og ef svo er, hvernig komust þeir um borð með slík vopn? Hvers vegna fá ættingjar ekki að sjá farþegalistana með nöfnum flugræningjanna? Hvað kom fram í svörtu kössunum um flugleið og flughæð flugvélanna sem gæti varpað ljósi á hin meintu flugrán? Hvers vegna lá flugher Bandaríkjanna í lamasessi? Hvers vegna sat forseti Bandaríkjanna sallarólegur í barnaskóla í Florida meðan öll þjóðin fylgdist skelkuð með atburðunum fyrir framan sjónvarpið?  Bandarísk yfirvöld - sem sögðust hafa mikla samúð með ættingjum fórnarlamba - neituðu alfarið að svara þessum spurningum.  
    Það hefur verið venja í Bandaríkjunum að skipa opinberar rannsóknarnefndir eftir hvern meiriháttar harmleik. Rannsóknarnefndir voru t.d. skipaðar innan fárra daga eftir að Titanic sökk, eftir árásina á Pearl Harbor, eftir morðið á John F. Kennedy og eftir að Columbia eldflaugin sprakk. En það liðu 411 dagar uns Bandaríkjaforseti féllst  með semingi á að skipa rannsóknarnefnd um atburðina 11. september 2001. Hann setti þó skilyrði fyrir samþykkt sinni. Hann fengi sjálfur að skipa formann og framkvæmdastjóra rannsóknarnefndarinnar, og að vald hennar, fjármagn og starfstími yrðu takmörkuð. Rannsóknarnefndinni um mestu fjöldamorð í sögu Bandaríkjanna var úthlutað helmingi minna fé en nefnd þeirri sem kannaði ástarleiki Bill Clintons og Moniku Lewinsky.

Áleitnar spurningar

Hér eru fleiri áleitnar spurningar um atburðina 11. september 2001:

(1) Á vefsíðu bandarísku alríkislögreglunnar (FBI), er birtur listi með nöfnum og myndum nítján araba sem hún segir hafa staðið að fjöldamorðunum 11. september. En fáum dögum eftir 11. september gáfu sig fram við vestræna fjölmiðla og bandarísk sendiráð fimm þessara manna, undrandi að vera vændir um sjálfsmorðsárásirnar. Hvernig geta menn í senn framið sjálfsmorð og verið lifandi?  Ef aðrir en þessir menn hafi verið að verki, hverjir voru þeir? Og fyrst FBI veitti rangar upplýsingar um þessa fimm menn, er unnt að treysta yfirlýsingum FBI um hina ,,flugræningjana”?

(2) Ætla má að bandarísk stjórnvöld hefðu haft hag af því að sanna, að hinir meintu flugræningjar hefðu stigið um borð í flugvélarnar sem þeir ku hafa rænt.  Hvers vegna neita þá bandarísk yfirvöld að birta farþegalistana þar sem finna mætti nöfn hinna meintu flugræningja, svart á hvítu? Hvers vegna neita stjórnvöldin að leggja fram gögn um miðakaup flugræningjanna, t.d. kvittanir og yfirlit kreditkortafærslna? Og hvers vegna leyfa þau ekki starfsmönnum flugfélaganna að staðfesta opinberlega að hafa séð flugræningjana ganga um borð?

(3) Ættingjum Osama Bin-Laden í Bandaríkjunum var flogið milli staða í Bandaríkjunum með leynd meðan allt flug lá niðri í Bandaríkjunum og bandarískir borgarar fengu ekki að fljúga. Hvers vegna lá svo mikið á að leyfa þeim að fara og hvers vegna var pukrast með ferð þeirra?

(4) Um klukkan 17:00 á árásardeginum hrundi World Trade Center no. 7 eins og spilaborg. Þetta var 47-hæða bygging sem stóð rétt hjá turnunum tveimur. Engin flugvél hæfði þessa byggingu. Talið var að brot úr turnunum hefðu dottið á háhýsið og kveikt í.  En ljósmyndir af brunanum sýna aðeins takmarkaðan eldsvoða á tveim hæðum. Byggingin var greinilega ekki í ljósum logum. Aldrei fyrr né síðar hafa háhýsi hrunið af völdum eldsvoða.  WTC-7 hrundi lóðrétt á átta sekúndum án þess að skemma nærliggjandi hús. Myndbönd af hruninu gefa sterklega í skyn að byggingin hafi verið rifin niður með sprengiefni af sérfróðum aðilum.  Eigandi byggingarinnar gaf einnig í skyn í sjónvarpsviðtali  að byggingin hefði verið ,,rifin” niður. Hver setti sprengiefni í bygginguna,  hvenær og hvers vegna? Var eitthvað í því húsi sem ekki mátti uppgötva?

(5) Fjölmargir slökkviliðsmenn og aðrir borgarar hafa lýst því yfir við fjölmiðla að hafa heyrt, séð eða fundið fyrir sprengingum í turnunum tveimur stuttu áður en þeir hrundu. Frá því var greint í fjölmiðlum 11. og 12. september 2001. Er hugsanlegt að turnunum hafi verið einnig rústað með sprengiefni ? Ef svo er, hver setti sprengiefni í byggingarnar og hvenær?

(6)  Ætla má að bandarísk stjórnvöld hefðu hag af því að sanna frásögn sína um að flugræningjar hefðu steypt farþegavél á Varnarmálaráðuneytið (Pentagon). Til þess þyrfti lítið annað en að leggja fram myndbönd frá öryggismyndavélum, enda er byggingin umlukt slíkum vélum. Alríkislögreglan lagði einnig hald á öryggismyndband frá bensínstöð nálægt ráðuneytinu og myndband frá Sheratonhóteli.  Hvers vegna neita þá bandarísk stjórnvöld að birta þessi myndbönd? Er hugsanlegt að myndböndin sýni ekki farþegavél?  Og hvers vegna eru engar myndir til af flaki flugvélarinnar sem talin er hafa hrunið á Pentagon?

(7) Meðan hinir hrikalegu atburðir fóru fram og bandaríska þjóðin sat skelkuð við sjónvarpið, hlustaði forseti Bandaríkjanna á grunnskólabörn í Sarasota í Florida lesa sögu um geit.  Dvöl hans á þessum stað var alkunn.  Samt voru engar ráðstafanir gerðar af hálfu lífvarða forsetans til að koma honum burt sem fyrst í öruggt skjól þegar ljóst varð að samræmdar árásir stæðu yfir ,,á Bandaríkin".  Hann sjálfur virtist ekki sýna nokkurn áhuga að vita hvað væri á seyði. Hvernig gátu lífverðir forsetans verið svo vissir um að ekki yrði ráðist á forsetann meðan hann heimsótti skólann? Hvers vegna fylgdi engin orrustuþota flugvél forsetans frá Sarasota?

(8) Skýrar reglur eru í Bandaríkjunum um það hvernig flugherinn á að bregðast við ef flugvél týnist af leið, ef samband við hana rofnar eða flugvél er rænt. Venjan er sú, að orrustuvél er send á loft til að mæta viðkomandi flugvél og neyða hana til að lenda. Til slíkra viðbragða þarf ekki sérstakt leyfi háttsettra yfirmanna. Hvers vegna fór herinn ekki eftir þessum reglum þennan dag meðan til slíkra viðbragða hafði verið gripið í tugamæli á árinu?

(9) Ein meginregla í sakarrannsóknum er að ekki megi fjarlægja sönnunargögn frá morðstað fyrr en þau hafi verið ítarlega könnuð og skráð.  Samt var stálið úr rústum turnanna og WTC7 fjarlægt í hasti og selt til fjarlægra landa í bræðslu, áður en rannsókn hófst á orsökum hrunsins. Hvers vegna var lá svo mikið á að fjarlægja stálið og selja það í bræðslu og hvers vegna neita bandarísk yfirvöld að greina frá því hverjir hafi staðið að þeirri ákvörðun?

(10) Michael Springmann, fyrrverandi starfsmaður bandarísku ræðisskrifstofunnar í Jeddah i Saúdí-Arabíu, greindi frá því við fjölmiðla í Bandaríkjunum árið 2002, að meðan hann hefði starfað í Jeddah á árunum 1987-1989 hefði fulltrúi CIA í sendiráðinu skipað honum að veita ungum mönnum frá ýmsum múslímskum ríkjum vegabréfsáritanir, fólki sem ætti annars engan rétt á vegabréfsáritunum. Honum var tjáð að þessar undantekningar væru gerðar vegna þjóðaröryggis Bandaríkjanna. Í ljós kom að þessu fólki hafi verið ætlað að fá þjálfun í hryðjuverkum í Bandaríkjunum til notkunar gegn sovéska innrásarhernum í Afghanistan.  Komust hinir meintu flugræningjar atburðanna 11. september 2001 einnig með þessum hætti til Bandaríkjanna? Ef svo er, hver tryggði þeim vegabréfsáritun og hvers vegna?

Þetta eru aðeins fáeinar af fjölmörgu spurningum sem ættingjar fórnarlamba og almennir borgarar hafa sett fram en ekki fengið svör við.  Það er greinilegt að sakamálið 11. september 2001 er ekki upplýst.

Kerfisbundnar tilraunir bandarískra yfirvalda til að fela staðreyndir um fjöldamorðin 11. september og koma í veg fyrir uppljóstrun málsins, vekja grun um græsku og yfirhylmingar. Vissu þau fyrirfram um árásirnar og aðhöfðust ekkert?  Hjálpuðu þau árásarmönnunum? Eða skipulögðu þau hugsanlega sjálf árásirnar?  Þegar sakamál virðast óleysanleg er athugað hver hafi hagnast á glæpnum, hver hafi verið fær um að fremja glæpinn og hver hafi haft aðstöðu til þess.  Slík nálgun hjálpar við lausn sakamála.  Svör við ofangreindum spurningum vekja ógnvekjandi tilgátur. En það er háskalegt að lifa í blekkingu. Sé ein af ofangreindum tilgátum rétt, hlýtur heimsbyggðin að bregðast hart við því.  Heimsfriður krefst þess að málið verði upplýst og það sem fyrst.
 

Samantekt: Elías Davíðsson, 21. júní 2005, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Allar ábendingar um mistök eða vafasamar heimildir eru vel þegnar. Nánari heimildir finnast á vefsíðu höfundar  www.juscogens.org (á ensku).  

Heimildir:
(1) Leaps of Faith Required to Accept the Official Story
http://911research.wtc7.net/disinfo/deceptions/index.html
(2) Gary North, The Perplexing Puzzle of the Published Passenger Lists, 12 okt. 2001
http://www.ratical.org/ratville/CAH/Ppuzzle.html
(3) Pentagon Attack Videos
http://911review.org/Wiki/PentagonAttackVideos.shtml
(4) How Strong Is The Evidence For A Controlled Demolition?
http://www.plaguepuppy.net/public_html/collapse%20update/
(5) Christopher Bollyn. Fire Engineers Call WTC Probe ‘Half-Baked Farce’, American Free Press
http://www.americanfreepress.net/Conspiracy/Fire_Engineers_Call_WTC_Probe/fire_engineers_call_wtc_probe.html
(6) Tom Flocco, DOJ Asked FBI Translator To Change Pre 9-11 Intercepts, 24 March 2004,
http://tomflocco.com/modules.php?name=News&file=article&sid=50
(7) Stevenson Swanson, Flight 93 tape ends doubts for families, Chicago Tribune, 19 April 2002,
http://www.chicagotribune.com/news/specials/911/showcase/chi-020419flight93,0,2369725.story
(8) Firefighters reached WTC crash zone, BBC News World Edition, 4 August 2002,
http://news.bbc.co.uk/2/hi/world/americas/2171606.stm
(9) Paul Sperry, Airline denied Atta paradise wedding suit, WorldNetDaily, September 11, 2002,
http://www.worldnetdaily.com/news/article.asp?ARTICLE_ID=28904
 (10) Beverly Eckert, 'Silence cannot be bought', USA Today, 18 December 2003,
http://www.usatoday.com/news/opinion/editorials/2003-12-19-oppose_x.htm
(11) David Cole, The Ashcroft Raids, Amnesty International USA,
http://www.amnestyusa.org/amnestynow/ashcroftraids.html
(12) Michael C. Ruppert, The US Needs Another 911 In 2004, Solomon’s Temple, Jan 03, 2004,
http://www.solomonstemple.com/modules.php?name=News&file=article&sid=92
(13a) List of the nineteen (19) individuals who have been identified as hijackers aboard the four airliners that crashed on September 11, 2001, FBI, 14 September 2001,
http://www.fbi.gov/pressrel/pressrel01/091401hj.htm
(13b)  Photographs of the nineteen (19) individuals who have been identified as hijackers aboard the four airliners that crashed on September 11, 2001, FBI, undated
http://www.fbi.gov/pressrel/penttbom/penttbomb.htm
(14) Dick Fojut, WHEN WILL PRETENSE ABOUT THE 19 HIJACKERS CEASE?
http://anderson.ath.cx:8000/911/pen03.html
(15) Tracking the 19 Hijackers What are they up to now? At least 9 of them survived 9/11
http://www.welfarestate.com/911/#9
(16) Removed site
(17) Hijack 'suspects' alive and well, BBC News, 23 September, 2001,
http://news.bbc.co.uk/1/hi/world/middle_east/1559151.stm
(18) John Kaminski, Why can no one name the hijackers or prove they flew the planes?
http://www.whatreallyhappened.com/911flaw.html
(19) Robert S. Mueller, III, Director, FBI, Speech at the Commonwealth Club of California, San Francisco, CA, April 19, 2002,
http://www.fbi.gov/pressrel/speeches/speech041902.htm
(20) Alex Veiga, Feds' probe more possible Florida links to terrorist attacks, AP, First Coast News, 14 September 2001,
http://www.firstcoastnews.com/news/2001-09-14/florida_feds.asp
(21) ?
(22) FT Correspondents, Assault on America. Day the unthinkable struck at America's heart (Part III), 14 September 2001, Financial Times,
http://specials.ft.com/aoa/FT37MC9HRRC.html
(23) ABC News, Suspects ID’d; Rescue Efforts Go On; White House Originally Targeted, 12 September 2001,
http://abcnews.go.com/sections/us/DailyNews/WTC_MAIN010912.html
(24) Idem
(25) David Fisher, Second Hijacker Passport Said Found On Street Below WTC! 27 January 2004, http://www.rense.com/general48/secondhijackerpass.htm
(26) Hijacker's Passport and a Landing Gear Fragment Alone Survive Fiery Crash, 9-1-1 Research,
http://911research.wtc7.net/disinfo/deceptions/passport.html
(27)  ABC News, see note 23
(28) Anne Karpf, Uncle Sam's lucky finds, Guardian Ltd., 19 March 2002,
http://www.guardian.co.uk/september11/story/0,11209,669961,00.html
(29)  Removed webpage
(30) Removed webpage
(31) See note 9
(32) Jody A. Benjamin, Suspects’ actions don’t add up, Sun-Sentinel Com. 16 September 2001,
http://www.sun-sentinel.com/news/local/southflorida/sfl-warriors916.story
(33) Gary North, The Perplexing Puzzle of the Published Passenger Lists, Reality Check, Number 82, 12 October 2001,
http://www.ratical.org/ratville/CAH/Ppuzzle.html
(34) Gary North, The Perplexing Puzzle of the Published Passenger Lists, Reality Check, Number 82, 12 October 2001
http://www.globalresearch.ca/articles/NOR110A.print.html
(35)  Kathy Steele, Phantom Flight From Florida , Oct 5, 2001
http://web.archive.org/web/20011108145853/http://www.tampatrib.com/MGA3F78EFSC.html
(36) CBS News, Bin Laden Family Evacuated, Sept. 30, 2001,
http://www.cbsnews.com/stories/2001/09/30/archive/main313048.shtml   ????
(37a) Scott Loughrey, WTC-7: The Improbable Collapse. www.globalresearch.ca, 10 August 2003
(37b) The Federal Emergency Management Agency (FEMA) Report on the collapse of World Trade Center Seven
http://hawaii.indymedia.org/news/2003/07/3378.php
(37c) Letter to Swiss Re by R. Leland Lehrman, re: World Trade Center Insurance Case,
http://www.serendipity.li/wot/lehrman.htm
(38) Joe Calderone, Firefighter Mag Raps 9/11 Probe, Daily News, January 04, 2002,
http://www.cam.net.uk/home/aaa315/peace/explosions.htm
(39) Geronimo Jones, Evidence of Controlled Demolition, Letsroll911.com
http://letsroll911.org/articles/controlleddemolition.html
(40) Interview with Louie Cacchioli, firefighter. PeopleCom, 12 September 2001,
http://propagandamatrix.com/louie_cacchioli.htm
(41) Many Eyewitnesses Saw Flight 93, 9-1-1 Research,
http://911research.wtc7.net/planes/evidence/eyewitness.html
(42) Website removed
(43) Vanishing Jetliner, Red Flags in the Official Story, 9-1-1 Research,
http://911research.wtc7.net/disinfo/deceptions/vanishingplane.html
(44a) Bill McKelway, Three Months On, Tension Lingers Near the Pentagon, Richmond Times-Dispatch, December 11, 2001,
http://news.nationalgeographic.com/news/2001/12/1211_wirepentagon.html
(44b) Did Flight 77 really crash into the Pentagon?
http://thewebfairy.com/killtown/flight77/video.html
(45a) 5-Minute Video of George W. Bush on the Morning of 9/11, The Memory Hole,
http://www.thememoryhole.org/911/bush-911.htm
(45b) Allan Wood and Paul Thompson, President Bush's Movements and Actions on 9/11, Center for Cooperative Research,
http://www.cooperativeresearch.org/timeline/main/essayaninterestingday.html
(46) The video that proves that 9-11 was not a surprise, What Really Happened,
http://www.whatreallyhappened.com/schoolvideo
(47) Paul Thompson, The Failure to Defend the Skies on 9/11, Centerr for Cooperative Research, http://www.cooperativeresearch.net/timeline/main/essayairdefense.html
(48) Removed webpage
(49) Mark Elsis, Stand Down · Was 9/11 Lack of Air Defense Deliberate? The Revisionist,
http://www.vho.org/tr/2003/3/Elsis273-284.html
(50) Mark R. Elsis, Exposing NORAD's Wag The 911 Window Dressing Tale, Lovearth.net, January 8, 2003,
http://www.standdown.net
(51) On 9/11, CIA Was Running Simulation of a Plane Crashing into a Building, The Memory Hole,
http://www.thememoryhole.org/911/cia-simulation.htm
(52) Removed webpage
(53) Steven Komarow and Tom Squitieri, NORAD had drills eerily like Sept. 11. USA Today, April 19, 2004,
http://www.keepmedia.com/pubs/USATODAY/2004/04/19/444714
(54) John J. Lumpkin, Agency planned exercise on Sept. 11 built around a plane crashing into a building, The Boston Globe, 11 September 2002,
http://www.boston.com/news/packages/sept11/anniversary/wire_stories/0903_plane_exercise.htm
(55) Removed webpage
(56) Neil Mackay, Five Israelis were seen filming as jet liners ploughed into the Twin Towers on September 11, 2001, Sunday Herald, 02 November 2003,
http://ww1.sundayherald.com/37707
(57) Were Israelis Detained on Sept. 11 Spies? ABC News, 21 June (2002 ?),
http://abcnews.go.com/sections/2020/DailyNews/2020_whitevan_020621.html
(58)
(59) First public hearing of the Statement of Mindy Kleinberg to the National Commission on Terrorist Attacks Upon the United States March 31, 2003, Unanswered Questions,
http://www.spectrezine.org/war/Kleinberg.htm
(60) Free Press International, The U.S. Governments Unbelievable Disrespect Towards The 9/11 Victim's Families, 24 July 2004
http://www.freepressinternational.com/911.families.07.24.2004.html


Góðar bækur um atburðina 11. september 2001 og skyld mál

1.     David Ray Griffin: The New Pearl Harbor - Disturbing Questions about the Bush Administration and 9/11, Olive Branch Press (2004)

2.     David Ray Griffin: The 9/11 Commission Report - Omissions and Distortions, Olive Branch Press (2005)

3.      Webster Griffin Tarpley: 9/11 Synthetic Terror,  Progressive Press (2005)

4.     Paul Thompson: The Complete Terror Timeline - Year by Year, Day by Day, Minute by Minute, Center for Cooperative Research (2004)

5.     Michael C. Ruppert: Crossing the Rubicon - The Decline of the American Empire at the End of the Age of Oil,  New Society Publishers (2004)

6.     Michel Chossudovsky: War and Globalisation - The Truth Behind       September 11, CRG Publications, Canada, (2005)

Góðar kvikmyndir um atburðina 11. september 2001 (DVD)

1.    Barrie Zwicker: The Grand Conspiracy - The 9/11 News Special You Never Saw

2.     David von Kleist: In Plane Site

3.     Eric Hufschmid: Painful Deceptions



Síðast uppfært Sunnudagur, 18. September 2005 16:16
 
 
Go to top of page  Upphafssíða | Fjölmiðlar | Er Ísland réttarríki? | Er Ísland ríki friðar? | Er Ísland lýðræðisríki? | Siðferði | Palestína | Persaflóastríðið 1991 | Utanríkismál | Atburðirnir 11 September 2001 | Hafa samband |